Vortónleikar í Fríkirkjunni, laugardaginn 10. maí kl. 16Kór Kvennaskólans
"Tíminn líður, trúðu mér..." Ótrúlegt en satt: Það er tæp vika í vortónleikana okkar! Þeir verða að venju í okkar kæru Fríkirkju og hefjast að þessu sinni kl. 16, laugardaginn 10. maí. Við erum búnar að bjóða Kór Iðnskólans að vera gestir okkar og hlökkum til að vinna enn og aftur með þeim. Til upprifjunar: Þau voru með okkur í spunaverkefninu hans Gunnars Ben og svo aftur á kórmótinu 19. apríl. Stjórnandi þeirra er Kristín Þóra Haraldsdóttir. Andri Björn Róbertsson ætlar að syngja einsöng með okkur í einu lagi og svo verður bæði píanó- og gítarundirleikur. Ólöf Jónsdóttir leikur á píanó í nokkrum lögum og Þórður Jóhannesson, betur þekktur sem eðlisfræðikennari í Kvennaskólanum, ætlar að grípa í gítarinn í einu lagi. Dagskráin spannar bæði íslensk og erlend lög af ýmsu tagi, t.d. þjóðlög, lög úr kvikmyndinni "Sound of Music", perluna "Ég bið að heilsa", madrigala... Það stefnir allt í fjölbreytta tónleika.Eftir tónleika býðst gestum að ganga yfir í mötuneyti Kvennaskólans og njóta kaffiveitinga á sanngjörnu verði og rennur ágóðinn af þeim í kórsjóð. Aðgangur að tónleikunum er hins vegar ókeypis.
Við hvetjum alla tónlistarunnendur og velunnara okkar til að mæta á tónleikana og eiga með okkur skemmtilega stund við Fríkirkjuveginn.
Sjáumst á laugardaginn!
-MHH
PS: Ég var að bæta inn myndum og texta í frétt um kóramótið hér fyrir neðan.
Kóramótiđ í FlensborgarskólanumKór Kvennaskólans
Loksins gefst tími til að segja aðeins frá kóramótinu sem fram fór laugardaginn 19. apríl síðastliðinn í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Við vorum flestar mættar fyrir kl. 10 um morguninn til að hjálpa til við undirbúninginn og svo hófst mótið sjálft stuttu síðar með leikfimi og upphitun. Á mótið mættu Kór Flensborgarskólans, Kór MR, Kór FSu, Kór Iðnskólans, Kór Borgarholtsskóla og svo við. Við höfum ekki staðfestar tölur í höndunum en reiknast til að við höfum verið á milli 160 og 170 söngvarar.Hér sést Hrafnhildur Blomsterberg, stjórnandi Kórs Flensborgarskólans, stjórna hafnfirsku lagi í upphafi mótsins.
Hér er söngurinn kominn á fullt og einbeitingin leynir sér ekki. Hér sjást nokkrar úr okkar hópi taka vel undir.
Nei, þetta var sko ekki leiðinlegt!
Við æfðum sameiginleg lög fram að hádegi, ýmist allur hópurinn eða stelpur og strákar í sitthvoru rýminu. Eftir hádegi hélt samsöngurinn áfram og náðum við að fara yfir alls 11 íslensk og erlend lög af ýmsu tagi. Geri aðrir betur án undirbúnings! Þetta gekk ótrúlega hratt og vel fyrir sig, krakkarnir voru allir svo duglegir að læra.
Hér sést hluti af strákunum sem voru auðvitað fjölmargir. Hver segir svo að strákum finnist hallærislegt að syngja í kór?!
Hér má sjá stelpurnar á stelpuæfingu í kórstofu Kórs Flensborgarskólans að æfa "Abba labba lá". Já, þau eiga þessa líka fínu kórstofu út af fyrir sig í Hafnarfirðinum!
Hér má sjá hressa Flensborgara reiða fram ljúffenga súpu handa allri hersingunni í hádegishléinu.
Seinni partinn fékk hver kór smá næði til að æfa "lögin sín" og eftir stutta kaffipásu voru haldnir glæsilegir tónleikar.
Hér erum við að æfa okkur úti á gangi. Já, það varð að nýta plássið vel til að allir gætu æft sig í einu!
Hér gæðum við okkur á ljúffengum kaffiveitingum rétt fyrir tónleika...
Á tónleikunum söng hver kór 3 lög og var gaman að sjá hve við erum öll ólík að stærð og gerð, allt frá 5 manna sönghópi Borgarholtsskóla til um 70 manna kórs Flensborgarskólans. Lagavalið var fjölbreytt og gerði tónleikana mjög skemmtilega fyrir vikið. Sumir sungu allt undirleikslaust en aðrir voru með hljómsveit og einsöngvara, svo dæmi séu nefnd. Af okkur komust bara 10 á tónleikana en við létum ekki deigan síga og sungum lögin okkar þrjú af hjartans lyst. Eftir þessi sýnishorn frá kórunum safnaðist allur hópurinn upp á sviðið og kórstjórarnir sex skiptust á að stjórna 10 af sameiginlegu lögunum sem æfð höfðu verið fyrr um daginn.
Hér erum við að syngja lögin okkar, "Down by the Salley Gardens", "Á Sprengisandi" og "Vakna Dísa".
Margrét Helga kynnir næsta lag...
Hér er allur hópurinn kominn á sviðið og syngur "Grafskrift" Hjálmars H. Ragnarssonar undir öruggri stjórn Guðlaugs Viktorssonar, stjórnandi Kórs MR.
Vart þarf að taka fram að þetta var mikil upplifun og dýrmæt reynsla eins og við höfðum búist við. Bæði lærðum við á að syngja öll þessi góðu samsöngslög og að heyra og sjá hina kórana. Stefnan er að gera eitthvað í líkingu við þetta aftur á næsta ári og verður gaman að sjá hvaða útfærsla verður á því.
Við þökkum öllum sem þátt tóku í mótinu kærlega fyrir samvinnuna og Kór Flensborgarskólans og stjórnandi hans fá sérstakar þakkir fyrir góðar og hlýlegar móttökur.
-MHH
Framhaldsskólakórar syngja í Flensborgarskóla, laugardaginn 19. aprílKór Kvennaskólans
Nú er spennan í hámarki: langþráð kóramót verður á laugardaginn. Í því taka þátt nokkrir framhaldsskólakórar og er gert ráð fyrir að þátttakendur verði vel á annað hundraðið. Dagskrá hefur verið skipulögð, sameiginleg lög ákveðin... já, þetta er allt að ganga upp.Mótið byrjar með samsöng kl. 10 og verður sungið eitthvað fram yfir hádegi (með smá matarhléi). Klukkan 16.30 hefjast tónleikar þar sem þeir kórar sem vilja syngja nokkur lög einir og allir flytja svo sameiginlegu lögin. Þetta verða væntanlega mjög fjölbreyttir og skemmtilegir tónleikar þar sem við komum úr ýmsum áttum.
Mótinu lýkur svo með kvöldvöku og húllumhæi fyrir þátttakendur.
Við Kvennaskólasöngskvísurnar erum spenntar og hlökkum til að taka þátt í þessu fjöri. Við sem vorum á Akureyri fyrir tveimur árum erum ekki búnar að gleyma því hvað svona mót eru skemmtileg og gefandi.
Hér sést hluti af þátttakendum í kóramótinu á Akureyri 2006 í tónleikalok.
Það var einmitt á Akuryeyri sem við vígðum kórpeysurnar okkar og vöktum mikla athygli fyrir vikið!
Við hvetjum vini og vandamenn til að koma á tónleikana á laugardaginn og sjá fullt af ungu söngfólki spreyta sig.
-MHH
Spunniđ af lífi og sál!Kór Kvennaskólans
Þá er spunaverkefnið okkar vel af staðið og var það ótrúlega lærdómsríkt og skemmtilegt í alla staði fyrir þá sem tóku þátt. Við æfðum af krafti frá kl. 12.00 í dag í Sölvhóli, tónleikasal LHÍ við Sölvhólsgötu. Frá okkur í Kvennó tóku þátt í lokasprettinum sex stelpur (auk kórstjóra) og er algjör synd hversu margar voru uppteknar því þær misstu af miklu. Við fínpússuðum bæði verkin sem við sömdum og sungum og voru einhverjir þættir sameiginlega verksins frumsamdir í dag... Þetta mátti því ekki tæpara standa því tíminn leið hratt.Hér er hópurinn einmitt að semja stapp- og klapp kafla sameiginlega verksins. Sveiflan leynir sér ekki...
Rétt fyrir klukkan fjögur tóku tónleikagestir að streyma að og var mætingin á tónleikana framar björtustu vonum þar sem fyrirvari og þar með auglýsingatími var mjög stuttur. Tryggir foreldrar, fyrrverandi kórfélagar og fleiri vinir kóranna áttu með okkur góða stund og hlýddu á tónverkin þrjú. Viðtökur voru góðar enda er óhætt að segja að allt hafi smollið saman og lögin verið skemmtilega ólík og frjó, öllum höfundum og Gunnari Ben til mikils sóma.
Í klapp- og stappkaflanum gengu félagar um salinn. Hér er Ester á ferð.
Brynhildur fylgdi fast á eftir.
Hér eru allir komnir á sinn stað, föngulegur hópur ekki satt?
Við í Kór Kvennaskólans þökkum Gunnari Ben hjartanlega fyrir frábæra leiðsögn í verkefninu. Við erum heldur betur reynslunni ríkari eftir þessa vinnutörn. Ekki má gleyma að þakka Ingibjörgu skólameistara fyrir komuna á tónleikana. Okkur grunar að hún hafi verið eini skólameistarinn sem mætti og þótti okkur óskaplega vænt um að sjá hana í áhorfendahópnum.Við þökkum líka hinum kórunum sem tóku þátt. Það var svo gaman að hitta aðra söngelska framhaldsskólanema og vinna með þeim.
Sem minnir okkur á það: Senn líður að kóramóti nokkurra framhaldsskólakóra sem haldið verður í Flensborgarskólanum eftir 2 vikur eða laugardaginn 19. apríl. Þar verður örugglega glatt á hjalla og mikið sungið.
10. maí höldum við vortónleikana okkar í Fríkirkjunni, að ógleymdum söng á útskrift í Hallgrímskirkju, 23. maí... Já, það verður sko meira en nóg að gera hjá okkur á næstu vikum!
-MHH
Kórspuni međ Gunnari BenKór Kvennaskólans
Nú hefur verið aldeilis nóg að gera hjá kórnum. Við höfum verið á kafi í spunaverkefni undir stjórn hins frábæra og fjölhæfa tónlistarmanns og kórstjóra Gunnars Ben sem við þekkjum af góðu síðan við sungum með Árnesingakórnum hans í fyrra. Fleiri framhaldsskólakórar taka þátt í verkefninu með okkur. Vinnan hefur farið þannig fram að hver hópur hefur hitt Gunnar tvisvar á æfingum til að gera stutt verk saman. Við enduðum með að vinna okkar verk með félögum úr Kór Iðnskólans og Verslunarskólans. Kór Menntaskólans við Sund gerði sjálfstætt verk með Gunnari á sínum æfingum. Í gær, föstudaginn 4. apríl hittust allir hóparnir og byrjuðu á sameiginlegu verki. Þeirri vinnu verður haldið áfram í dag og endum við á að flytja verkin þrjú kl 16.00 í Sölvhóli, tónleikasal Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu 13 (bakhús).Þetta hefur verið mjög skemmtilegt og skapandi enda tónskáldin mörg og allir kórfélagar hafa jafnan atkvæðisrétt. Við semjum bæði lög og texta og hugmyndirnar vantar sko ekki!
Við hvetjum því alla áhugasama til að koma á Sölvhólsgötuna og heyra flutninginn sem verður einstakur því þetta verður ekki endurtekið, amk. ekki verk alls hópsins... Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!Gunnar Ben í góðum gír á æfingu í gær í LHÍ við Sölvhólsgötu.
Fjóla, Elínborg, Anna Lucie og Ester glaðar á samæfingu.
...og minni hópum. Hér eru Lóa og Brynhildur einbeittar í lagasamningu og söng ásamt félögum úr hinum kórunum.
-MHHTilraun til myndainnsetningarKór Kvennaskólans
Smá lífsmark...Þar sem við eigum enn í ítrekuðum erfiðleikum með að setja inn myndir á myndasíður bloggsins, okkur til mikillar mæðu, ætlum við til sárabóta að setja inn nokkrar myndir frá því í desember hér beint í frétt og gá hvort það gangi betur.
Hér er fyrst þessi glaðlega tónleikamynd tekin á jólatónleikunum okkar á fyrsta sunnudegi í aðventu 2007:
Daginn eftir sungum við nokkur jólalög í mötuneyti skólans fyrir nemendur áður en þeir héldu heim í próflesturinn:
Nokkrar okkar komust í Debenhams til að syngja jólalög fyrir viðskiptavini á aðventunni:
Sem betur fer vorum við svo aðeins fleiri þegar við sungum í IKEA nokkrum dögum síðar:
Verðum við ekki að segja að þetta sé betra en ekkert á meðan við bíðum eftir myndamálin komist í lag?
Skrifum annars fréttir af vorönninni mjög bráðlega því nú er mikið á seyði...
-MHH
Gleđilegt ár!Kór Kvennaskólans
Gleðilegt ár kæru vinir! Nú er kórinn búinn að hvíla sig yfir jólin og aftur farinn að æfa af krafti á nýju og spennandi ári. Dagskrá vorannarinnar er í mótun og munum við segja frá henni þegar hún skýrist.Jólasöngurinn í Debenhams og IKEA gekk ágætlega, sérstaklega vorum við ánægðar með seinna skiptið okkar í IKEA, fimmtudagskvöldið 20. desember, því þá var minna um forföll og söngurinn hljómmeiri og betri. Við fengum góðar viðtökur í öll skiptin og þökkum þeim sem á hlýddu.
Því miður hefur okkar ágæta bloggsíða verið að stríða okkur síðan í jólafríinu. Loksins þegar við tókum til í myndum og ætluðum að bæta fullt af þeim hér á síðuna kom í ljós að einhver bilun er í bloggkerfinu og ekki hægt að setja inn myndir í bili. Við bíðum því þolinmóðar og gerum það um leið og hægt er.
-MHH
Langţráđar fréttir af haustönninniKór Kvennaskólans
Heldur hefur verið lítið um fréttir hér á síðunni okkar á þessu hausti en það þýðir ekki að kórinn hafi setið aðgerðalaus, þvert á móti hefur verið nóg að gera.Kórstarfið hófst í byrjun september með raddprufum og komu nokkrir nýir félagar í hópinn. Kórinn telur nú um 20 félaga og hefur kórstarfið gengið mjög vel, mæting verið góð á æfingar og fínn andi í hópnum.
Um mánaðarmótin október-nóvember fór kórinn í æfingabúðir í Skálholt þar sem æft var krafti og skemmt sér eins og vera ber frá föstudegi til sunnudags. Ferðin tókst í alla staði mjög vel. Við náðum m.a. að æfa okkur svolítið í Skálholtskirkju sem er alltaf jafn stórkostleg upplifun enda kirkjan eitt besta tónleikahús landsins. Nokkrar tóku líka þátt í bænastund og messu.
Dagur íslenskrar tungu, 16. nóvember, fór varla fram hjá nokkrum manni og að venju gekk kórinn um skólann og söng íslensk lög fyrir nemendur og starfsfólk. Í þetta sinn slóst Andri Björn Róbertsson í hópinn og heillaði alla með glæsilegum einsöng í laginu "Ég bið að heilsa..." en lögin sem voru sungin voru flest við ljóð afmælisbarnsins, Jónasar Hallgrímssonar.
Á síðasta kennsludegi haustannar söng kórinn nokkur jólalög í mötuneyti nemenda og sendi þannig nemendur í sönnu jólaskapi inn í prófafarganið.
Hápunktur annarinnar í kórstarfinu voru aðventutónleikar kórsins sem haldnir voru í Fríkirkjunni sunnudaginn 2. desember kl. 20. Tónleikarnir voru vel sóttir og hlýlegar viðtökur gesta yljuðu kórnum um hjartarætur. Sungin voru lög af ýmsu tagi, aðallega trúarleg lög og auðvitað jólalög! Kórinn þakkar þeim sem komu kærlega fyrir að hafa gefið sér tíma til að skreppa í Fríkirkjuna á þessu fagra kvöldi.
Nú um helgina mun kórinn syngja jólalög í anddyri verslunarinnar IKEA, nánar tiltekið sunnudaginn 16. desember frá k l. 13-14. Svo mun hópurinn halda í verslunina Debenhams í Smáralind og syngja þar aðeins síðar um daginn. Fimmtudagskvöldið 20. desember heldur kórinn aftur í IKEA og syngur þar frá kl. 20-21. Velunnarar kórsins eru hvattir til að nýta sér þessi tækifæri til að koma að hlusta á okkur um leið og þeir sinna jólainnkaupum!

Við setjum inn myndir frá haustönninni við fyrsta tækifæri en bendum á að fullt af myndum frá Madrid bættust við þær sem fyrir voru í október.
-MHH
Allt ađ gerastKór Kvennaskólans
Búið er að setja inn annál um kórinn þar sem hægt er að lesa um hvað við vorum að gera á seinasta ári og fljótlega munu koma fleiri myndir frá Madríd ásamt mynd af kórnum í núverandi mynd.Nú erum við byrjaðar að æfa á fullu og undirbúa okkur fyrir það sem mun koma á þessari önn en við ætlum m.a. að syngja í messu í Fríkirkjunni og á degi íslenskrar tungu.
En fyrst ætlum við kynnast betur og fara í æfingabúðir í Skálholt í nóvember.
Kórinn ađ byrjaKór Kvennaskólans
Kveðja frá Margréti Helgu kórstjóra:"Nú er haustið gengið í garð og skólastarf byrjað. Þá fer kórinn aftur að hugsa sér til hreyfings eftir sumardvala frá því að komið var heim úr frábærri Madridarferð. Eitt af því sem mun gerast á næstunni er að fleiri myndir úr ferðinni munu bætast hér í myndasafnið. Af nógu er að taka, það er eitt sem víst er!
Kórkynningar hafa farið fram í skólanum undanfarna daga og margir sýnt því áhuga að bætast í hópinn. Raddprufur fyrir nýliða fara fram frá kl. 16.30 mánudaginn 3. september í kórstofunni okkar (stofu N4). Þriðjudaginn 4. september verður svo fyrsta æfing vetrarins. Æfingar verða á svipuðum tíma og undanfarin ár eða kl. 16.30-18.30 á þriðjudögum og fimmtudögum. Að vísu verður frí fimmtudaginn 6. september vegna busadags og -balls. Dagskrá annarinnar er í mótun og verður kynnt betur þegar nær dregur atburðum.
Hlakka til að sjá nýja og gamla félaga á þriðjudaginn! :-)
-MHH